Podcast charts
Published by einarhler
Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Einar og Óskar munu taka viðtöl við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, s.s. arkitekta, verkfræðinga, verktaka, stjórnmálamenn og fleirri. Einnig munu þeir rýna í bækur og fræðigreinar tengd arkitekúr, auk vettvangsferða og heimsóknir í áhugaverð fyrirtæki og til fólks. Einar Hlér rekur arkitektastofuna Sei Studio, ásamt konunni sinni Shruthi Basappa. Óskar Örn er með doktorsgráðu í arkitektasögu frá Columbia háskóla í New York og starfar um þessar mundir hjá skipulagi Reykjavíkurborgar.
On the charts
Every published chart this podcast appears in, in the snapshot behind this page. Each one links to the chart it came off.
From the feed
The latest episodes published to this podcast’s own RSS feed. Titles and descriptions are the publisher’s.
Ólöf Kristjánsdóttir og Atli Björn Levy gegna lykilhlutverkum í þróun Borgarlínu. Þau eru bæði samgönguverkfræðingar, Ólöf starfar hjá COWI áður Mannvit og Atli Björn er forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu. Þau sögðu okkur frá stöðu verkefnisins, áskorunum og næstu skrefum.
Gestur þáttarins er Albína Thordarson arkitekt. Hún var formaður Arkitektafélags Íslands 2005–2007 og hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands árið 2025. Meðal verka hennar eru leikskólar, orlofshús og Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði, sem hún teiknaði með systur sinni, Guðfinnu Thordarson. Albína er dóttir Sigvalda Thordarson arkitekts (1911–1964), sem teiknaði 200–300 hús á rúmlega tveimur áratugum. Nýlega kom út bókin Sigvaldi Thordarson arkitekt eftir Albínu og Pétur H. Ármannsson hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi. Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við Albínu um bókina, ævi Sigvalda og mörg verka hans. Þau ræða líka Sigvaldalitina, sem setja svip á hús hans.
Gestir þáttarins eru Sigríður Maack arkitekt og Henný Hafsteinsdóttir, minjavörður Reykjavíkur og nágrennis hjá Minjastofnun Íslands. Saman standa þær að Teiknað af konum , gagnasafni um íslenskar konur í arkitektúr. Fyrsti hluti verkefnisins er sýningin Brautryðjendur , sem var á HönnunarMars 2026 og stendur enn í Arctic Space á Óðinsgötu 7. Hún fjallar um þær 28 íslensku konur sem luku námi í arkitektúr fram til ársins 1980. Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við þær um verkefnið, brautryðjendurna og verk þeirra.
Guðrún Harðardóttir er arkitekt sem vinnur nú m.a. að því að taka saman myndskreytta orðabók um arkitektúr á íslensku. Guðrún starfaði lengi fyrir ARGOS en hefur nýlega gangsett sína eigin arkitektastofu, g.HARKitekt. Orðaforði í arkitektúr er langt frá því að vera fullnægjandi, mikið er um ensku- og dönskusléttur í fagmálinu og við ræðum hvernig Guðrún er að nálgast þetta verkefni frá ólíkum hliðum.
Roger Mullin is an architect and educator at the School of Architecture at Dalhousie University in Halifax, Nova Scotia. His work uses drawing and design-build to explore landscape, coastal communities and the materials of industry. Between 2015 and 2018 he brought four groups of architecture students to Iceland for 12-day field trips. In 2024 he was a visiting professor at the Iceland University of the Arts. Óskar Örn Arnórsson and Einar Hlér Einarsson talk with Roger about his exhibition Prototypes for a Landscape at Slökkvistöðin in Gufunes. The conversation covers drawing on site in conté and ink, building at full scale, the Forest Cave at Mógilsá, and learning to read a landscape that is never neutral. This episode is in English.
Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Karl Cela reka arkitektastofuna Basalt ásamt fleirrum. Basalt er ein allra öflugasta arkitektastofa landsins með langa reynslu af ýmsum tegundum verkefna. Stofan er þekktust fyrir sérkunnáttu sína í hönnun baðstaða og Sigga og Hrólfur segja okkur frá sínum verkefnum, þeirra þátttöku í Feneyjarstvíeyringnum á næsta ári og margt fleirra.
Ásta Logadóttir starfar sem lýsingarhönnuður hjá verkfræðistofunni Lotu og hefur tekið virkan þátt í stefnumótun og starfi tengt lýsingu á opinberum vettvangi. Ásta fer með okkur í gegnum yfir alla þætti er varða lýsingu og reglugerðir, samanburð við hin Norðurlöndin og margt fleirra.
Grunnar Kristjánsson rekur Brunahönnun slf. og hefur verið stórtækur á sviði brunahönnunar í 30 ár. Við ræddum helstu bruna síðustu ára á Íslandi og afleiðingar þeirra, en komum einnig aðeins inn á Grenfell brunann í London, þróun innan fagsins og margt fleirra.
Í þættinum komu Páll og Áróra til okkar til þess að tala um innleiðingu lífsferilsgreininga og aðra þætti tengda umhverfismálum í byggingariðnaðinum. Páll og Áróra eru hluti af sjálfbærniteymi HMS og höfðu bæði mikla reynslu í þeim geira áður en þau gengu til liðs við HMS.
Snædís Traustadóttir er lærður smiður með sérþekkingu á fornu handverki. Hún hefur fengist við ýmis verkefni, m.a. endurnýjun á þaki Landakotskirkju en hún kennir einnig námskeið í fornverki um allt land. Snædís er um þessar mundir einnig í meistaranámi í Noregi, hún kom og sagði okkur frá því og fræddi okkur um ýmislegt er varðar gömlu aðferðirnar.
Ástíður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir reka saman arkitektastofuna ARKIBYGG, sem stofnuð var árið 2020. Stofan hefur unnið til fjölda verðlauna, þrátt fyrir ungan aldur, en þær hafa einnig verið að vinna mikið í verkefnum á Seyðisfirði og Bíldudal og annars staðar á landinu.
Páll Hjaltason er einn eiganda +Arkitekta og hefur komið víða við á löngum ferli. Árið 2010 var hann í 7. sæti á lista Besta flokksins og varð í kjölfarið borgarfulltrúi og formaður Skipulagsráð. Páll segir okkur frá tímanum í Reykjavík og m.a. frá gerð aðalskipulags Reykjavíkur 2040, sem nú er í gildi.
Auður Hreiðarsdóttir rekur arkitektastofuna ESJA. Stofan er tiltölulega ný og var stofnuð í Danmörku í byrjun áratugarins. ESJA hefur fengist við rannsóknarverkefni, haft sigur í samkeppnum og fengist við ferðamannaverkefni. Við töluðum um allt þetta og margt fleirra með Auði.
Anna María Bogadóttir er prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Hún rekur einnig stofuna Úrbanistan og hefur komið að útgáfu margra bóka um arkitektúr á íslensku. Við töluðum við Önnu Maríu um niðurrif bygginga og tengist það helst bók hennar, Jarðsetning, sem kom einnig út sem kvikmynd árið 2021.
Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og fyrrum deildarforseti arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, hefur sinnt kennslu, rannsóknum og ráðgjöf í tengslum við félagspólitískt samhengi manngerðs umhverfis, m.a. sem gestaprófessor við Yale. Í þættinum notar Hildigunnur hugmyndir Deleuze og Guattari sem linsu á íslenskt landslag, borgarskipulag og samspil markaðs- og lýðræðis. Einnig ræðir hún kennslu, rannsóknaverkefnið Turfiction og fleiri atriði.
Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi í rannsóknum og varðveislu íslenskra menningarminja. Hann var fyrstur Íslendinga til að sérhæfa sig í endurgerð eldri bygginga og hefur m.a. komið að endurreisn Viðeyjarstofu, Nesstofu, Bessastaðastofu, Alþingishússins og Hóladómkirkju. Þorsteinn hefur verið ritstjóri ritraðarinnar Kirkjur Íslands frá upphafi, en um er að ræða 31 bindi um friðaðar kirkjur landsins. Í þættinum fer Þorsteinn yfir íslenska kirkjubyggingarsögu, allt frá torf- og timburkirkjum til steinhlaðinna og steinsteyptra kirkna.
Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún einnig næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar í hæsta gæðaflokki. Hún kom og sagði okkur frá þessum byggingum, samstarfi sínu við arkitekta ásamt mörgu fleirru.
Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði, en listinn hefur verið í meirihluta þar síðan 2022. Gylfi fræðir okkur um ástandið á innviðum í sveitarfélaginu og þróun síðustu ára, ásamt því að fara yfir sögu nokkurra af helstu byggingum bæjarins. Nokkrir tenglar á umfjöllun um Ísafjarðarkirkju: https://timarit.is/page/7360713#page/n5/mode/2up https://timarit.is/page/6548129#page/n17/mode/2up https://timarit.is/page/7346132
Vigfús Þór er skipulagsfulltrúi Árborgar, en hefur einnig sinnt starfi skipulagsfulltrúa á mörgum öðrum stöðum á Suðurlandi. Við förum í hlutverk skipulagsfulltrúa, miðbæ Selfossar og fleirri atriði í þættinum.
Magnús Skúlason, arkitekt, á að baki langan og glæstan feril, bæði í einkageiranum og á opinbera sviðinu. Hann hefur starfað sem formaður byggingarnefndar Reykjavíkur, en er einnig einn af leiðtogunum í verndun eldri byggðar. Hann er vinsæll hjá fjölmiðlum þegar talað er um fréttir er tengjast byggingarmálum og Magnús fór yfir víðan völl í þættinum með okkur Óskari og Einari.
Ranking source
Apple Podcasts rankings via the Mato Topic Intelligence Platform.
Observed November 4, 2026.
Apple and Apple Podcasts are trademarks of Apple Inc., registered in the U.S. and other countries.
Pairs with
Bring this source into Mato to read its transferable patterns, then turn them into an original show for your own audience.