Podcast charts
Published by Undirmannaðar
Þrjár tvíburamæður með munnræpu. Deilum reynslu okkar á tvíburum ásamt því að fá til okkar frábæra viðmælendur sem allir eiga það sameiginlegt að vera foreldrar.
On the charts
Every published chart this podcast appears in, in the snapshot behind this page. Each one links to the chart it came off.
From the feed
The latest episodes published to this podcast’s own RSS feed. Titles and descriptions are the publisher’s.
Viðmælandi vikunnar er Eva Margrét, móðir, tvíburi og gellu gamer. Eva Margrét eignaðist sitt fyrsta barn fyrir tæpum 5 mánuðum og gekk í gegnum afar erfiða tíma en dóttir hennar greindist viku gömul með Herpes. Við förum yfir allt tengt greiningunni, meðgönguna, uppvaxtarárin sem tvíburi og svipumst aðeins inn í tölvuleikjaheiminn. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval 💦 Happy Hydrate
Viðmælandi vikunnar er Helga Reynis, þriggja barna móðir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir. Í þættinum ræðum við hvernig leiðin lá í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði og fengum við heldur betur að spyrja hana spjörunum úr tengt meðgöngum, fæðingum og brjóstagjöf 🫶🏼 Við fórum einnig inná meðgöngurnar hennar og fæðingar ásamt því að ræða stór verkefni sem þau fjölskyldan hafa staðið frammi fyrir síðastliðið ár. 🎂🎁 mælum með að fylgjast vel með í næstu viku Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval 💦 Happy Hydrate
Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval 💦 Happy Hydrate
Viðmælandi vikunnar er Júlía Arnardóttir, tveggja barna móðir og verkfræðingur. Júlía og maðurinn hennar Skúli fluttu til San Francisco til að mennta sig og fluttu í kjölfarið til Stokkhólms þar sem þau hafa eignast 2 börn. Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, hvernig hún kynnist Skúla, dvölina og skólann í San Francisco, flutningana og dvölina í Stokkhólmi ásamt því að fara vel yfir meðgöngur og fæðingar barnanna. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval 💦 Happy Hydrate
Viðmælandi vikunnar er Guðrún Lóa, tvíburamamma og lyfjafræðingur. Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, menntaskólann, lyfjafræðina og ævintýri í Austurríki. Sjokkið að komast að því að eiga von á tvíburum, tvíburalífið og DNA rannsókn sem kom skemmtilega á óvart! Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 🧸 Kids-World 💚 Lyfjaval
Viðmælendur vikunnar eru Embla og Lára, tveggja barna mæður og framkvæmdaóðar gellur. Þær sögðu okkur frá því hvernig þær kynntust, ferðalögunum saman, meðgöngum og fæðingum. Að sjálfsögðu ræddum við líka framkvæmdirnar sem þær hafa farið í síðustu ár, m.a. á drauma húsinu. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🍕Neo pizza
Viðmælandi vikunnar er Svandís Péturs, þriggja barna móðir. Svandís sagði okkur frá skemmtilegri sögu þegar hún og Hörður kynntust, ævintýrunum fyrir barneignir, hvernig kökubaksturinn spratt upp, að eignast börn með stuttu millibili, að eiga barn með heyrnarskerðingu og lífinu og tilverunni. Andrea og Svandís uppgvötuðu í þættinum að þær væru líklega “týndar systur” Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🍕Neo pizza
Viðmælandi vikunnar Pálína Georgsdóttir, fjölburamamma, viðskiptafræðingur, dansari og leikari, svo fátt eitt sé nefnt. Pálína er eina konan á Íslandi, sem vitað er um, sem hefur orðið ófrísk af fimmburum. Hún sagði okkur á einlægan hátt frá þeim tíma, áfallinu og öllu sem því fylgdi. Pálína er fædd og uppalin Mexíkó og hún sagði okkur frá uppvaxtarárunum, flutningum til Íslands, ólíkri menningu, uppeldi og svo margt annað skemmtilegt. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🍕Neo pizza
Viðmælandi vikunnar er Birna Rún, tveggja barna móðir, leikkona og grínisti. Birnu þarf vart að kynna enda farið eins og eldur um sinu í grínheiminum. Það var vægast sagt hlegið mikið og grínað en líka farið inná erfiða tíma. Birna segir okkur meðal annars frá því hvernig var að verða mamma ung og gefur okkur innsýn í listaheiminn. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 💦 Happy Hydrate 🍨 Gaeta Gelato
Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🧡 Serrano 💦 Happy Hydrate 🍨 Gaeta Gelato
Viðmælandi vikunnar er Rakel Másdóttir, tveggja barna móðir og verðstýringar- og verkefnastjóri Samkaupa. Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, fimleika”uppeldið”, fæðingarnar, en eldri strákurinn þeirra fæddist töluvert fyrir tímann og segir Rakel okkur frá því hvað olli því ásamt því að ræða lífið, að láta ekkert stoppa sig og svo margt fleira skemmtilegt. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🧡 Serrano 💦 Happy Hydrate 🍨 Gaeta Gelato
Viðmælandi vikunnar er Erna Ómarsdóttir, þriggja barna móðir. Erna og maðurinn hennar, Guðmundur hafa gengið í gegnum erfiða tíma og sagði hún okkur á einlægan og hugrakkan hátt frá barnsmissi, fyrirburafæðingu og öllum áskorunum sem því fylgdi. Hún sagði okkur einnig frá lífi fjölskyldunnar í dag, listaferlinum, búsetu erlendis og margt fleira! Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🧡 Serrano 💦 Happy Hydrate 🍨 Gaeta Gelato
Viðmælandi vikunnar er Nína Líf. Hún er gift Tómasi Aroni og saman eiga þau tvo syni. Við ræðum uppvöxt, ástina, fjölskyldulífið, ferðalög og þau krefjandi verkefni sem lífið hefur fært þeim, þar á meðal missi, heilabilun og aflimun í nánustu fjölskyldu. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey
Viðmælandi vikunnar er Agla Eir, þriggja barna móðir og lögmaður. Agla hefur alla tíð verið með hugann við að búa erlendis og Ameríka heillaði þar, þau fjölskyldan tóku þá ævintýralegu ákvörðun að pakka í töskur og flytja út þar sem Agla fékk inngöngu í Colombia háskólann í New York. Við ræddum dvölina úti, meðgöngurnar, fæðingarnar og mismunandi fæðingarorlof ásamt fleira skemmtilegu. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey
Viðmælandi vikunnar er Ása Steinars, tveggja barna móðir, ljósmyndari og fyrirtækjaeigandi. Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, ævintýraþrá, ferðalög & búsetu erlendis, barneignir og störf hennar í gegnum tíðina. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey
Viðmælandi vikunnar er Karen Lekve, fellow tvíburamamma. Við áttum ótrúlega skemmtilegt spjall um meðgönguna, fæðinguna, að ala upp tvíbura og lífið og tilveruna. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey
Viðmælandi vikunnar er Indíana Nanna, tveggja barna móðir, þjálfari og eigandi GoMove. Við áttum ótrúlega skemmtilegt og áhugavert spjall um meðgöngur, fæðingar, hreyfingu og samanburð hjá konum fyrir og eftir meðgöngu og líkamlegar breytingar. Þá ræddum við ævintýrið í kringum stofnun GoMove og hvernig er að reka fyrirtæki samhliða fjölskyldu og barneignum. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💫 Smáralind 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey
Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey
Viðmælandi vikunnar er Ágústa Rós, þriggja barna móðir og fellow tvíburamamma. Í þættinum ræðum við uppvaxtarárin, meðgöngurnar og fæðingarnar og hvernig lífið er í dag með þrjá orkumikla stráka. Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey
Viðmælandi vikunnar er Hlín Magnúsdóttir, þriggja barna móðir frá Hvolsvelli. Hlín hefur magnaða og krefjandi sögu að segja, hún og hennar fjölskylda gengu í gegnum stórt áfall þegar barnsfaðir hennar varð fyrir heilaskaða. Við fórum líka á léttu nóturnar, ræddum fæðingarnar, lífið í sveitinni og allt þar á milli. Ef einhver þarna úti er eða hefur verið í svipuðum sporum og langar að spjalla við einhvern sem skilur, þá má senda á Hlín hér á instagram eða senda henni tölvupóst hlinm92@gmail.com Þátturinn er í samstarfi við: 🌱 Nettó & Änglamark 💙 Sjóvá 🔑 Félag lykilmanna 💚 Lyfjaval 🏦Landsbankinn 🧡 Serrano 💦Happy Hydrate 🍕Flatey
Ranking source
Apple Podcasts rankings via the Mato Topic Intelligence Platform.
Observed September 20, 2026.
Apple and Apple Podcasts are trademarks of Apple Inc., registered in the U.S. and other countries.
Pairs with
Bring this source into Mato to read its transferable patterns, then turn them into an original show for your own audience.