Podcast charts
Published by HeilsuErla
Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni. t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.
On the charts
Every published chart this podcast appears in, in the snapshot behind this page. Each one links to the chart it came off.
From the feed
The latest episodes published to this podcast’s own RSS feed. Titles and descriptions are the publisher’s.
Í þessum þætti ræðir Erla við alveg hreint dásamleg stelpukonu, Guðrúnu Hafþórs, um lífið og tilveruna, heilsumissi, streitu, myglu, áhrif áfalla, leitina að heilsunni, um ofurkonuna og dugnaðinn sem drepur! Á Instagram síðu sinni deilir Guðrún raunveruleikanum á einlægan og hispurslausan hátt undir slagorðinu „vott jú sí is vott jú get“. Þar fjallar hún um lífið eins og það er í heilsuorlofi, bæði hæðir og lægðir og reynir að smita gleði og dreifa glimmeri. Þessi þáttur er einnig í mynd og var tekinn upp í Klakinn studio. Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 🌱 - SPÍRAN . Besti brunch í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘 - VIRKJA . Bókaðu frían 20 mínútna kynningarfund á virkja.is 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í gjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands um nýju bókina hans “How Digital Screen Use Alienates Human Societies: A treatise on social magic and its decadence”. Bókin fjallar um neikvæð áhrif skjábyltingarinnar og varpar ljósi á þá þversögn hvernig fjölbreyttari og víðtækari samskiptahættir hafa stuðlað að auknu samskiptaleysi og firringu, sem birtist meðal annars í auknum einmanaleika og angist, pólariseringu og átökum. Hlustaðu einnig á viðtalið sem Erla tók við Viðar í júlí 2024. Félagslegir töfrar. (Tilfinningaleg smitun, félagslegt heilbrigði, stemmning og hlutverk íþrótta). Viðar Halldórsson. Þar ræða Erla og Viðar um hvernig tæki og tól hafa aukið samskipti við fjærsamfélagið en gallinn er að þau hafa takmarkanir og minnka mannleg tengsl. Snjalltæki soga mennskuna úr og eftir stendur bara það sem er skrifað. Það er ekki bara það sem við segjum (eða skrifum) heldur þetta ósýnilega, líkamstjáning, raddblær ofl sem skiptir svo miklu máli. Við erum ekki eins meðvituð um nærumhverfi okkar og þá tapast augnsamband ofl. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi. Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um heilsu, hreyfingu, jóga og sjálfsrækt um árabil. Guðni sem notar íslenskuna svo fallega með skilgreingum á orðum sem við notum hugsunarlaust, hefur meðal annars skrifað bækurnar Máttur athyglinnar, Máttur viljans og Máttur þakklætis. Hann hefur í gegnum tíðina talað mikið um athygli, ábyrgð, nærveru, val og það hvernig við sjálf getum haft áhrif á það hvernig við upplifum lífið. Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 🌱 - SPÍRAN . Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘 - VIRKJA . Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Ekki missa af Kvennakvöldi HeilsuErlu sem haldið verður á Spírunni 10.október í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk. Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðar hér ! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Í þættinum ræðir Erla við Kristján Þór Gunnarsson, heimilislækni um áhrif lífsstíls á heilsu, samfélagssjúkdóma, skaðsemi gjörunninna matvæli á almenna heilsu, næringarlæsi, stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og hver eða hvað ber ábyrgð á versnandi heilsu þjóðarinnar, hvernig við getum mögulega snúið þeirri þróun við og um leið fjölgað heilbrigðum æviárum. Erla og Kristján ræða einnig um heildræna heilsu og hvernig þættir eins og svefn, mataræði, hreyfing, streitustjórnun, félagsleg samskipti, tilgangur og fleira séu allt jafn mikilvægir þættir til þess að upplifa heilbrigði. Kristján Þór sem hefur sérhæft sig í offitu, næringu og lýðheilsu bendir einnig á mikilvægi þess að finna rót vandans í langvinnum krónískum sjúkdómum til þess að hægt sé að snúa við þróun þeirra. Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 💙 - HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk og Femarelle. 🌱 - SPÍRAN . Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘 - VIRKJA . Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Ekki missa af Kvennakvöldi HeilsuErlu sem haldið verður á Spírunni 10.október í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk. Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðasala er hafin hér ! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Í þættinum ræðir Erla við Heiðrúnu Birnu Rúnarsdóttur. Heiðrún hefur verið ötull talsmaður fyrir umhverfisvernd og er stofnandi og eigandi Grænu stofunnar sem er eina umhverfisvottaða hárgreiðslustofan á Íslandi. Þær stöllur ræðu um áhrif þess að alast upp í sveit, hvaðan áhuginn og virðingin fyrir umhverfinu spratt, hvernig gildi okkar geta verið leiðarvísir í lífi og starfi og hve mikilvægt það er að setja sér og öðrum mörk. Við ræddum einnig um muninn milli á umhverfisvottaðra vara og vara sem eru það ekki og áhrif þeirra á náttúruna og heilsuna. Bæði heilsu þeirra sem vinna með efnin og þeirra sem nota þau. Kvennakvöld HeilsuErlu 10.október. Kvöld sem þú vilt ekki missa af! Fræðsla, skemmtun og góður matur. Miðasala er hafin hér ! Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 💙 - HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk og Femarelle. 🌱 - SPÍRAN . Besti brunchinn í bænum! Allar helgar milli kl.11-15. 🐘 - VIRKJA . Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október. Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Miðasala er hafin hér. Húsið opnar kl.18:15 Fordrykkur og kvöldmatur* innifalinn. Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22. Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsa Edda Björgvins- Húmor og heilsa Elísabet Reynis- Næring og heilsa Halldóra Skúla- Hormónar og heilsa Kvöldið endar svo á sjúklega skemmtilegu Tingó með Hrund Scheving (Tónlistarbingó) Að dagskrá lokinni er gestum velkomið að sitja áfram og spjalla og skemmta sér fram á kvöld. Verð 10900kr. Aðeins 100 miðar í boði. Ég hvet alla til að mæta tímanlega og njóta matarins eða kíkja á kynningarbása hjá samstarfsaðilum hlaðvarpsins, Virkja, Þín fegurð, Nutrilenk og Femarelle áður en formleg dagskrá hefst. p.s. ef þig vantar dress fyrir kvöldið mæli ég með að kíkja í verslunina Systur og makar í Síðumúla 21 eða skoða vefverslun þeirra systurogmakar.is *Matseðill. Þú getur valið um: 1. Heilsusalat „Heilsu Erlu“ með blönduðu salati, spínati, avókadó, agúrkum, fetaost, papríku, eggi, kjúklingi, kjúklingabaunum, hnetum og hindberja dressingu. 2. Confit önd á ristuðu foccacia með döðlusultu, feyki og pikkluðum rauðlauk. 3. Grænmetisútgáfa af Heilsusalati HeilsuErlu. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald? Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslega sterkur líkami 💪🏻 sterkur hugur 🧠 sterk næring 🌱 sterk tengsl 🫶 = Sterk heild! Taktu þátt! Þetta er afar auðvelt. Hér er hlekkur á sniðmátið af áskoruninni. Prentaðu út blaðið Skrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í september. (1-10 venjur) Merktu við daglega. Þetta snýst ekki um fullkomnun, bara að gera sitt besta og hafa gaman. ✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨ Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekkert venjulegt kvöld…því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Hin eina sanna Edda Björgvins, Beta Reynis og Halldóra Skúla verða með fræðslu og Hrund Scheving hjá Sche Events sér um að halda uppi stuðinu. Aðeins 100 miðar í boði. Allar nánari upplýsingar verða birtar á @heilsuerla Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár. Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur. Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan tilgang. ✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨ Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það verður ekkert venjulegt kvöld…því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Hin eina sanna Edda Björgvins, Beta Reynis og Halldóra Skúla verða með fræðslu og Hrund Scheving hjá Sche Events sér um að halda uppi stuðinu. Aðeins 100 miðar í boði. Allar nánari upplýsingar verða birtar á @heilsuerla Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 💙 - HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk. 🌱 - SPÍRAN . Besti brunchinn í bænum! 🐘 - VIRKJA . Töfrandi nám í markþjálfun- næsta lota heft 15.október. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Í þessum þætti ræðir Erla við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og fólkið í kringum hann og hvers vegna við þurfum að tala um hana með meiri skilningi og minni skömm. Þetta er ekki auðveld umræða en hún er mikilvæg. Ég vona að þetta samtal veki upp samkennd og skilning en kannski fyrst og fremst minnki fordóma. Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 💙 - HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk. 🌱 - SPÍRAN . Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 - VIRKJA . Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Í þættinum ræðir Erla við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega. Þær stöllur ræða um alls kyns mýtur varðandi þjálfun og hreyfingu, hvort að það sé munur á konum og körlum, hvort að æfa þurfi á mismunandi hátt eftir því hvar konar er stödd í tíðarhringnum, hvernig æfingar henta á breytingarskeiði og fleira. Á vef verkefnisins má finna fjölda faglegra fræðslumyndbanda sem ég hvet ykkur til að skoða nánar. Einnig má finna verkefnið á Instagram Sérstakar þakkir til samstarfsaðilanna minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi: 💙 - HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir með Nutrilenk. 🌱 - SPÍRAN . Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 - VIRKJA . Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Hlaðvarpið er orðið 3 ára og Season 4 er mætt. TAKK öll fyrir að hlusta! Í þessum heilsumola velti ég upp spurningunum: Af hverju er svona erfitt að breyta venjum? Hvernig get ég gert góða hegðun auðveldari og slæma hegðun erfiðari? Hvar á ég að byrja? Hvernig á ég að byrja? Hvernig verður eitthvað að venju? Venjur móta líf okkar meira en við gerum okkur grein fyrir. Við hugsum oft um stórar ákvarðanir sem það sem mótar lífið okkar. Hvar við búum. Hvað við lærum. Hvaða starf við veljum en í raun eru það litlu hlutirnir sem við gerum á hverjum degi sem hafa mest áhrif á hegðun okkar og líf. Venja er einfaldlega hegðun sem við endurtökum svo oft að hún verður næstum sjálfvirk. Og þess vegna geta venjur annaðhvort orðið okkar sterkasti bandamaður eða versti óvinur. Ég mæli með að lesa bókina Atomic Habits eftir James Clear. Hann bendir á að markmið segja okkur hvert við viljum fara, en það eru daglegu venjurnar sem ráða því hvort við komumst þangað. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Í þessum þætti ræðir Erla við Jasmín Guðrúnu foreldraþjálfa um samskipti, uppeldi, skjánotkun, mörk, tengsl, samviskubitið fræga og áhrif þess á velferð og heilsu barna. Virkiega skemmtilegt og fræðandi spjall. Þið finnið Jasmín á TikTok þar sem hún setur inn alls konar fræðsluefni og er einnig nýbyrjuð með hlaðvarpið Orlofið þar sem rætt er um foreldrahlutverkið af einlægni. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 - HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir mikið með vörum frá New Nordic. 🌱 - SPÍRAN . Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 - VIRKJA . Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að kyrkja konur eða stúlkur. Ranghugmynda gætir um að eitthvað sé til sem heitir öruggar kyrkingar en nýlegar rannsóknir leiða í ljós meiri hættu við að þrengja að blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum (töluvert minna átak en þrýstingurinn við venjulegt handaband). Það geta orðið alvarlegar skemmdir á heila þótt engin ummerki sjáist og alvarleikinn kemur jafnvel ekki ljós fyrr en mörgum dögum síðar. Í hálsinum eru viðkvæm bein og beingerð brjósk sem geta brotnað við þrýsting án þess að það sé sýnilegt eða uppgötvist strax. Að kyrkja aðra manneskju er alltaf hættuspil og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað ofbeldi, kynferðislegt eða ekki. Stígamót, Samtök um kvennaathvarf, Bjarkarhlíð- miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Vitund – samtök gegn kynbundnu ofbeldi, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Félag kynjafræðikennara hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli á þessum hættum, miðla nýjustu þekkingu og hvetja til fræðslu og umræðu. Átakið ber heitið „Með lífið í lúkunum” og miðlar staðreyndum um hættu kyrkingartaka. Með lífið í lúkunum fór af stað 22. júní og verður kynnt fyrir öllum aldurshópum en þess ber að geta að ungt fólk á Íslandi hefur sérstaklega kallað eftir meiri fræðslu um kynhegðun og kynbundið ofbeldi. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Nýlega settumst við Börkur Reykjalín Brynjarsson niður og ræddum um kvíða og þunglyndi, burnout, spilafíkn, skömm, sjálfsvígshugsanir og fleira. Hann segir í viðtalinu á einlægan hátt frá fallegri en sorgleg lífsreynslu þegar hann leitaði til Píeta samtakanna eftir að lífið hafði leikið hann grátt. Berki finnst mikilvægt að ræða opinskátt um hlutina í stað þess að byrgja þá inni og fela. Það er skömmin sem dregur allt of marga til dauða en einungis 10% þeirra sem eru með spilafíkn leita sér aðstoðar. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 - HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir mikið með vörum frá New Nordic. 🌱 - SPÍRAN . Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 - VIRKJA . Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
í þættinum ræðir Erla við Rut Eiríksdóttur hjúkrunarfræðing um sjúkdóminn offitu. Rut segir frá megrunarmenningu í æsku, erfiðum bróðurmissi og hvers vegna hún stofnaði SFO samtök fólks með offitu. Þær stöllur ræða um skilgreininguna á sjúkdómnum, hlutverk erfða og umhverfis, matarsuð, átkastaröskun og fordóma. Rut hefur glímt við offitusjúkdómin frá barnæsku og alin upp í megrunarmenningu. Aðeins þrettán ára gömul þróaði Rut með sér átröskun og eftir að hafa barist áfram í áraraðir og prófað alla megrunakúra undir sólinni, leitaði hún sér hjálpar og fór í efnaskiptaaðgerð sem bjargaði heilsu hennar. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 - HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð. 🌱 - SPÍRAN . Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 - VIRKJA . Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Ég fékk ósk um að gera Djúpslökun án undirspils/tónlistar og varð að sjálfsögðu við þeirri beiðni. Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf? Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spennu og eða streitu sem situr í líkamanum. Þessi djúpslökun er rúmlega 30 mínútna leidd hugleiðsla sem er einföld en afar áhrifarík leið til að gleyma stað og stund, beina athyglinni inn á við, vera í meðvitund og auka vellíðan. Njótið vel! Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Í þættinum ræðir Erla við Önnu Maríu Jónsdóttur um Geðhvarfasýki og heilsu en Anna María fór í sitt fyrsta geðrof fyrir um ári síðan. Hún segir okkur frá sjúkdómnum og bataferlinu og hvað það er mikilvægt að tala opinskátt um andlega sjúkdóma til þess að minnka fordóma. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 - HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð. 🌱 - SPÍRAN . Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 - VIRKJA . Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Þar sem að Hugrekki hefur verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk námi mínu hjá Virkja og þau voru að byrja með hlaðvarpið Virkja spjallið, fékk ég leyfi til þess að deila þessum fallegu hugleiðingum Laufeyjar með ykkur. „Virkja Spjallið“ er podcast um markþjálfun, meðvitund og mannlegan vöxt. Við ræðum uppbyggileg málefni, skoðum eiginleika markþjálfunar og veltum fyrir okkur hvernig við getum innleitt markþjálfahugarfarið í daglegt líf og starf. Hlý og innihaldsrík spjöll fyrir þau sem vilja vaxa, tengjast sjálfum sér og öðrum og skapa meiri meðvitund í daglegu lífi. Að baki podcastinu stendur Virkja sem er markþjálfunarskóli, þar starfa hópur reyndra markþjálfa með ástríðu fyrir vexti, mannlegum tengslum og því að styðja fólk í að efla innri styrk sinn og meðvitund. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
In this insightful interview, Pia Marangoni shares her journey from banking to health and strength coaching, emphasizing the importance of personalized nutrition, resilience, and the transformative power of strength sports. Discover practical tips on pre- and post-workout nutrition, managing menopause and hormonal changes through lifestyle and living in alignment with your true self. Pia Marangoni’s Instagram The Fiercely Fueled Podcast A huge shoutout to the podcasts sponsors: 💙 - HEILSUHILLAN an Icelandic company that focuses on promoting and selling health and wellness products like Femarelle . 🌱 - SPÍRAN a cozy and beautiful restaurant in Iceland serving incredibly healthy, homemade food. It’s a place that truly nourishes your body and supports your health journey. My favourite on the menu these days is the rsalad that I designed in collaboration with Spíran. (Heilsusalat Heilsuerlu) 🐘 - VIRKJA the life coach school that changed my life. I learned so much about myself, and has helped me grow in every part of my life, as a mom, a wife, a person, and even as a podcaster. 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Located in Hafnarfjörður, Iceland, it is a comprehensive beauty salon offering a wide range of professional treatments. The name uses the Icelandic words Þín (Your) fegurð (beauty). 💦 - UNGBARNASUND ERLU (Erla's Baby Swimming) is my swim school. Based in Hafnarfjörður, it offers professional, varied, and friendly classes focusing on bonding, play and water safety for infants and children up to 2,5 years of age. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun. Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þess að tryggja góða almenna heilsu og góð og sterk bein alla ævi. Sigríður stofnaði síðuna Beinheilsa.is þar sem hægt er að nálgast fræðslu, aðstoð, næringar ráðleggingar og æfingarmyndbönd. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 - HEILSUHILLAN. Nutrilenk- Vantar þig öflugan liðstyrk? 🌱 - SPÍRAN . Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 - VIRKJA . Töfrandi nám í markþjálfun 💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar. 💦 - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. Fylgdu HeilsuErlu á Instagram !
Ranking source
Apple Podcasts rankings via the Mato Topic Intelligence Platform.
Observed November 4, 2026.
Apple and Apple Podcasts are trademarks of Apple Inc., registered in the U.S. and other countries.
Pairs with
Bring this source into Mato to read its transferable patterns, then turn them into an original show for your own audience.