Podcast charts
Published by mordskurinn
Spjöllum saman um morð, mannshvörf, raðmorðingja og dularfull dauðsföll sem eru bæði leyst eða óleyst mál! Nýr þáttur kemur út alla miðvikudaga. Þú finnur okkur á facebook og instagram: Morðskúrinn. www.pardus.is/mordskurinn
On the charts
Every published chart this podcast appears in, in the snapshot behind this page. Each one links to the chart it came off.
The Mato Topic Intelligence Platform does not report this podcast as charting in a published category in this snapshot.
From the feed
The latest episodes published to this podcast’s own RSS feed. Titles and descriptions are the publisher’s.
48 ára Kent var íþróttafréttamaður hjá Tribune og var að vinna frameftir á hrekkjavöku aðfaranótt 1. nóvember 2001. Að vinnudegi loknum komst hann þó ekki lengra en að bílnum sínum, því þar voru tveir menn sem komu til með að berja og kyrkja hann til bana. Tveir menn voru að lokum ákærðir fyrir að manndrápið, byggt eingöngu á vitnisburði en engra haldbærra sönnunargagna.
Þann 21. febrúar árið 1980 ætlaði hin 18 ára gamla Katherine Foster að gera sér góðan dag með bestu vinkonum sínum og kíkja í verslunarmiðstöð. Katherine átti tíma eftir hádegi þennan dag og var planið því að skjótast fyrir hádegi en hún átti aldrei eftir að komast alla leið. Lík hennar átti eftir að finnast tveimur dögum síðar og við tók heilmikil rannsókn sem að skilaði afar litlu í allmörg ár. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Nicole var 8 ára gömul þegar hún ætlaði að fara út ein með vinkonu sinni í sundlaug íbúðarsamstæðunnar sinnar. Vinkona hennar beið eftir henni í andyrinu, en þar sem Nicole bjó á efstu hæð þá þurfti hún að taka lyftuna niður. Nicole kom hinsvegar aldrei til með að koma út úr lyftunni þennan dag. Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag
Hin 19 ára gamla Missy Grubaugh var virkilega sjálfstæð, var farin að búa sjálf, vann mjög mikið til að eiga þak yfir höfðinu og fyrir skólagjöldunum sem hún var sjálf að greiða fyrir. Það var ekki mikill hasar í lífi hennar og áfallið því gríðarlegt þegar Missy fannst látin inn í herberginu sínu eftir bruna inn á heimilinu hennar. Þátturinn er í boði Define the Line Sport www.definetheline.is Heimaskipulag www.heimaskipulag.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Hin 83 ára Suzanne bauð syni sínum Stein-Erik að koma og búa hjá sér þegar hann var að ganga í gegnum erfiðleika í lífinu. Stein-Erik var meðal annars að glíma við andleg veikindi, og í stað þess að leita til fagaðila þá fór hann að spjalla við ChatGPT. Hann og forritið, sem hann kallaði Bobby, urðu nánir vinir með tímanum og að lokum kom Stein-Erik til með að taka mjög slæma ákvörðun. Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag
Árið 1984 var viðburðarrík helgi framundan hjá hinni 16 ára gömlu Theresu Fusco. Vakt á vinnustaðnum, gistipartý með vinkonu og svo dagur með pabba hennar - en hún skilaði sér aldrei til vinkonu sinnar eftir vinnu. Við tók leit sem skilaði litlum árangri í margar vikur en að lokum fannst Theresa látin. Við tók heilmikil rannsókn sem átti eftir að fara í bókstaflega allar áttir áður en morðingi Theresu var að lokum handtekinn. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Colleen Slemmer var aðeins 19 ára gömul þegar hún fannst myrt, en hún hafði verið í prógrammi á vegum vinnumálastofnunar þar sem henni hafði verið úthlutað búsetuúrræði í Knoxville. Það hafði ekki gengið áfallalaust fyrir sig, þar sem hún varð fyrir miklu einelti af hálfu annarra nemenda sem stunduðu prógrammið. Það tók rannsakendur ekki langan tíma að upplýsa mál hennar, þar sem ein af þeim sem réðst á hana hafði meðal annars tekið brot úr höfuðkúpunni hennar og sýnt samnemendum þeirra. Sú stelpa hét Christa Pike, en hún hefur setið inni á dauðadeild síðan 1995 og mun aftaka hennar fara fram í dag, 30. september 2026 klukkan 15:00.
Russel og Shirley Dermond voru komin vel á níræðisaldur og búin að koma sér vel fyrir í úthverfi við Lake Oconee. Lífið snerist fyrst og fremst um að njóta, þau eyddu tíma sínum með börnum, að sinna félagslífinu og voru dugleg að mæta á viðburði. Það kom því virkilega á óvart þegar þau mættu ekki á einn slíkan þann 3 maí árið 2014. Þremur dögum síðar fannst Russel látinn inn á heimili þeirra en Shirley var hvergi að finna. Þátturinn er í boði Heimaskipulag - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inn á www.heimaskipulag.is Define the Line - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inn á www.definetheline.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Einn dag var Robert tekinn við að reyna að brjótast inn á heimili viðskiptavinar síns, hann var á leiðinni í fangelsi en ákvað að fara á flótta. Hann fór hinsvegar ekkert langt og eyddi oft á tíðum tíma með eiginkonu sinni og börnum á meðan hann átti að vera í felum. Einn daginn bankaði lögreglan svo upp á hjá þeim, sem varð til þess að Robert sá ekki aðra leið en að taka sitt eigið líf. Það sem átti eftir að koma í ljós var að hann var viðriðinn miklu meira heldur en grunur var um í fyrstu.
Stacy Colbert var 23 ára gömul, nýútskrifuð úr markaðsfræði og nýbyrjuð í starfi sem markaðsgreinandi í Columbus, Ohio. Hún hafði komið sér vel fyrir í íbúð í fjölbýlishúsi en það var einmitt þaðan sem hún hvarf eitt kvöld árið 1998 og það algjörlega sporlaust. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Dustin hafði kynnst nágrönnum sínum Tracey og Michael nokkuð vel, og var hann duglegur að hjálpa þeim með allskyns verkefni sem stóð honum til boða. Hinsvegar mætti hann einn daginn óboðinn inn á heimili Tracey með vini sínum og ætlaði að ráðast á börnin hennar, svo Tracey tók til sinna ráða að verja fjölskylduna sína. Enginn skildi hvers vegna, en rannsókn átti eftir að leiða það í ljós. Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag
LaNelle Barsock var ótrúlega dugleg kona, búin að mennta sig, kaupa sér hús og hlakkaði til að koma sér þar betur fyrir. Hún var vel liðin af öllum enda ótrúlega ljúf og góð við allt og alla. Það var því gríðarlegt áfall þegar LaNelle var myrt inn á heimili sínu. Þátturinn er í boði Define the Line Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Staudte fjölskyldan samanstóð af Mark, Diane og börnum þeirra fjórum, þeim Shaun, Sarah, Rachel og Brianna. Á fimm mánaða tímabili árið 2012 gerðust dularfullir hlutir innan fjölskyldunnar, þegar fjölskyldumeðlimur byrjuðu að veikjast og að lokum deyja. Rannsókn átti eftir að leiða í ljós hvað raunverulega var að gerast fyrir fjölskyldumeðlimina. Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag
Hin 17 ára gamla Taylor Behl var skynsöm og ábyrg stelpa og nýbyrjuð í háskóla þegar hún hvarf að virtist sporlaust. Hún hafði ætlað að skreppa frá til að gefa herbergisfélaga sínum smá næði en hún átti aldrei eftir að skila sér heima aftur. Það var ekki fyrr en 10 dögum eftir hvarf hennar sem að málið rataði í hendur lögreglu - fram að því hafði háskólalögreglan haldið því fram að hún hafi bara látið sig hverfa sjálf. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Dan og fyrrverandi eiginkona hans Wendy voru með sameiginlegt forræði, sem gerði það að verkum að hún gat ekki flutt aftur til foreldra sinna. Það kom henni þó í opna skjöldu þegar Dan var myrtur á heimili sínu einn daginn, og tókst rannsóknarlögreglumönnum að rekja ferðir þeirra sem höfðu orðið honum að bana. Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt hjá Define The Line Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt hjá Heimaskipulag
Hin 16 ára gamla Sherri Jo hélt af stað í skólann þann 16 nóvember árið 1983 en í skólann átti hún aldrei eftir að skila sér. Lögreglan tók ofboðslega létt á hvarfi Sherri og taldi að hún væri unglingur í uppreisn. Svo var aldeilis ekki því lík hennar átti eftir að finnast fjórum dögum síðar og við tók ansi löng lögreglurannsókn. Þátturinn er í boði Define the Line Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Sade var aðeins 19 ára gömul þegar hún hvarf en hún hafði aldrei skilað sér heim eftir vinnu og kom bíllinn hennar til með að finnast brenndur til kaldra kola. Þátturinn er í boði - Define the Line - Heimaskipulag
Árið 1996 höfðu vinkonurnar Tiffany og Melissa báðar starfað á ljósabekkjastofu sem var sérstaklega fyrir karlmenn - en þar gátu þeir sótt sér auka þjónustu sem ekki bauðst á hefðbundnum ljósabekkjastofum. En það var þar sem að lík þeirra beggja áttu eftir að finnast einn góðan veður dag en þær höfðu báðar verið stungnar til bana. Við tók rannsókn sem að leiddi lögreglu í margar áttir og enn er mörgum spurningar ósvarað. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Orrin og Orson voru tvær bræður sem höfðu fljótlega eftir fæðingu verið færðir í fósturkerfið sökum vanrækslu heima fyrir. Þeim var komið fyrir í fóstri hjá Jacqueline og Trezell West og þar átti lífið aldeilis að byrja. Fjölskyldan flutti frá Bakersfield til California City, en ekki löngu eftir það voru strákarnir tilkynntir týndir. Að sögn Trezell höfðu þeir verið úti í garði að leika sér þegar þeir hurfu, líklegast í gegnum hliðið í garðinum. Rannsókn lögreglu leiddi til tímalínu dularfullra atburða sem átti eftir að láta þá vilja breyta stefnu rannsóknarinnar. Þátturinn er í boði Define The Line en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt af öllum vörum. Þátturinn er í boði Heimaskipulag en með kóðanum morðskúrinn fáið þið 15% afslátt á heimasíðu og í verslun.
Þegar hin 16 ára gamla Sherita Williams skilaði sér ekki heim úr snyrtitíma þá vöknuðu upp spurningar hjá foreldrum hennar. Sherita var öllu jafna mjög samviskusöm stelpa en átti það þó til að biðja foreldra sína um örlítið meira frelsi svo þau héldu ró sinni. En daginn eftir stóð þeim ekki á sama og úr varð leit. Þátturinn er í boði Heimaskipulag Define the Line Sport Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn
Ranking source
Apple Podcasts rankings via the Mato Topic Intelligence Platform.
Observed November 17, 2026. Cached outside the daily freshness window; the positions keep the date they were taken on.
Apple and Apple Podcasts are trademarks of Apple Inc., registered in the U.S. and other countries.
Pairs with
Bring this source into Mato to read its transferable patterns, then turn them into an original show for your own audience.