Podcast charts
Published by Unnur Borgþórsdóttir
Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum. Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi. Til að hafa samband: mordcastid@gmail.com instagram.com/mordcastid twitter.com/mordcastid
On the charts
Every published chart this podcast appears in, in the snapshot behind this page. Each one links to the chart it came off.
From the feed
The latest episodes published to this podcast’s own RSS feed. Titles and descriptions are the publisher’s.
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í dag erum við enn á ný í Bandaríkjunum, og í þetta skiptið erum við í McKeesport í Pennsylvaníu. Unglingsstelpu líður ekki frábærlega á heimili sínu svo hún bregður á það ráð að flýja það ítrekað, alveg þar til einhver maður tekur á móti henni með opinn faðm og heimili. Sem er reyndar í rauninni fangelsi, en hún komst ekki að því fyrr en aðeins of seint. Því miður! Þáttur dagsins er í boði Securitas, BL, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Sassy, Gjafabréf.is og Forlagsins. Þolandi: Tanya Nicole Kach Gerendur: Thomas John Hose og Judith „Judy" Sokol
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í dag fer Bylgja með okkur til Sydney. Ekki Ástralíu samt, heldur Sydney í Nova Scotia í Kanada. Þar er sautján ára strákur stunginn í almenningsgarði og lögreglan er ótrúlega fljót að finna sökudólginn. Kannski aðeins of fljót. Þátturinn er í boði Sassy, Securitas, Gjafabref.is, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi og BL. Þolandi: Sandy Seale (og smá Junior) Gerandi: Roy Ebsary
Í þætti dagsins lesum við ásamt Bókaklúbbi þjóðarinnar, bókina Tilfinningar eru fyrir aumingja eftir Kamillu Einarsdóttur. Allt í samstarfi við Bókastund og Miðstöð íslenskra bókmennta.
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í dag fer Unnur með okkur í ferðalag til Bandaríkjanna. Ferðalag sem við höfum farið í margoft, en það sem er óhefðbundið í dag er að mikið af málinu á sér stað undir mold og plexigleri. Algjörlega stórfurðulegt mál sem endar þó óvenju vel, svona miðað við þetta hlaðvarp allavega. Þáttur dagsins er í boði BL, Securitas, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, Gjafabréf.is og Sassy. Þolandi: Barbara Jane Mackle Gerandi: Gary Steven Krist og Ruth Eisemann-Schier.
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Hong Kong og segir frá hinni huggulegustu fjölskyldu, foreldrum og tveimur sonum, sem hafa átt hið huggulegasta líf. Það höldum við allavega en framvinda málsins lætur okkur sannarlega efast um það. Gríðarlega margar undarlegar u-beygjur eiga sér allavega stað, og enn fleiri undarleg innkaup og ákvarðanir. Þátturinn er í boði Nettó, Securitas, BL, Fulltingi, Happy Hydrate, Sassy og Gjafabréf.is Gerandi: Henry Chau og Angus Tse Chun-kei Þolendur: Chau Wing-ki (Glory Chau) og Siu Yuet-yee (Moon Siu) Fyrir óklipptan þátt eða áskriftarþátt þá mælum við með að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur alla leiðina til Suður-Kóreu og segir okkur frá hópi vondra manna (og í smá einnar konu) sem hefði alveg getað tekið mjög margar frábærar ákvarðanir en tók í staðinn alltof margar hræðilegar ákvarðanir. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Gjafabref.is, Nettó, Sassy, BL, Fulltingi og Securitas. Gerendur: Kim Gi-hwan, Kim Hyun-yang, Kang Dong-un, Baek Byung-ok, Kang Moon-sub, Song Bung-un og Lee Kyung-sook. Þolendur: Frænka vinar Kim Gi-hwan, Miss Choi, Song Bong-un, Lee Jeong-su, hjónin herra So og frú Park, og Lee. Óklipptan þátt, sjónvarpsþátt og áskriftarþætti má finna inná www.pardus.is/mordcastid
Í þessum þætti ræðum við systur bókina Áður en ég brjálast eftir Soffíu Bjarnadóttur.
Góðan daginn fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá hrottalegu máli sem tekur alltof langan tíma að upplýsa. Ungur maður vildi bara dansa við unga konu en það var að venju reiður maður sem fann sig knúinn til að eyðileggja það. Þátturinn er í boði: Nettó, Happy Hydrate, Óskaskrín, BL, Giggó, Fulltingi og Sassy Þolandi: Timothy Coggins Gerendur: Frankie Gebhardht og Bill Moore
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna og þar kynnumst við nokkrum einstaklingum í fjölkæru sambandi. Sem er vel, sérstaklega ef öll vita af því. Mikið kaos, margar spurningar og mikil undrun. Þáttur dagsins er í boði Sassy, Happy Hydrate, BL, Giggó, Fulltingi, Óskaskrín og Nettó. Þolandi: Desiree Sunford Gerandi: Marty Grismer. Allavega hann, kannski fleiri.
Góðan daginn, þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur alla leið til Ástralíu og segir okkur frá konu sem fannst myrt og brunnin í röri. Í kjölfarið fer af stað röð atburða sem gefur okkur þó alveg merkilega fá svör. Eiginlega alveg óþolandi, og líka stórmerkilegt. Þolandi: Linda Agostini, amk í einhverju máli. Þátturinn var í boði: Sassy, Happy Hydrate, BL, Óskaskrín, Fulltingi, Giggó og Nettó. Fyrir óklipptan þátt, sjónvarpsþátt eða áskriftarþætti þá mælum við með því að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins segir Bylgja okkur frá alveg svakalega undarlegu máli. Blautum þvotti í poka, andliti á glugga, konu á tánumog manni með alveg svakalega stóra barta. Allt hið undarlegasta og enginn veit neitt. Þáttur dagsins er í boði Sassy, BL, Fulltingi, Happy Hydrate, Nettó, Óskaskrín og Giggó. Fyrir óklipptan þátt, áskriftarþætti og sjónvarpsþætti mælum við með því að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
Góðan daginn, þennan fallega lestrardaginn. Í dag förum við yfir bókina Irpu eftir Hildi Knútsdóttur. Fyrir sjónvarpsþáttinn getiði kíkt inná www.pardus.is/mordcastid
Góðan og glæsilegan fimmtudaginn. Þáttur dagsins er aðeins kaotískur en það er einungis (ekki alveg kannski) vegna þess að málið er mjög kaotískt. Unnur fer með okkur í einskonar Evrópureisu hvar gamall kall tekur margar hræðilegar afleiðingar og margar konur eru fórnarlömb. Alltof týpískt. Þáttur dagsins er í boði Nettó, gjafabréf.is, Happy Hydrate, BL, Fulltingi, Giggó og Sassy. Fyrir áskriftarþætti, óklippta vikuþætti og sjónvarpsþættina mælum við með að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid
Góðan daginn, fimmtudaginn. Maður á leið í vinnu mjög snemma morguns rekst á kassa sem hann óskar mjög heitt að innihaldi matvöru úr Nettó. Hann gerði það ekki. Við sögu koma börn, fátækt, ömurð og buffalóar. Í boði Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi, BL, Óskaskrín, Giggó og Sassy.
Góðan daginn, almyrkvadaginn. Í dag er Unnur með okkur í Nýju Mexíkó, hvar fullorðinn maður flýr til Mexíkó með nýrri kærustu sinni. Eða hvað? Líklega alls ekki. Þolandi: Craig Thetford Gerandi: Deana Thetford Í boði BL og MG, Nettó, Happy Hydrate, Sassy, Giggó, Fulltingi og Óskaskrín
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Maður fær í bakið, missir vinnuna og endar á einhvern ótrúlegan hátt á því að láta særa úr sér illu andana. Suma. Ekki alla. Þolandi: Christine Taylor Þátturinn er í boði: Happy Hydrate, Nettó, Óskaskrín, Sassy, Giggó, Fulltingi og BL.
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna, beinustu leið inná skyndbitastað til að fá okkur hamborgara og franskar. Það er þó ekki það eina sem við gerum í dag, því miður, því fjórir unglingar týnast og spurningarnar sem kvikna í kjölfarið eru óteljandi. Betra væri ef franskarnar væru óteljandi. Í boði Giggó, Nettó, Happy Hydrate, Nettó, Fulltingi og Sassy. Þolendur: Jayne Friedt, Mark Flemmonds, Ruth Shelton og Daniel Davis.
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins er sögð saga af manni sem lét réttlætiskenndina þvælast heldur mikið fyrir sér. Eða hvað? Í boði Nettó, Sassy, Giggó, Happy Hydrate, Fulltingi og Nettó. Þolandi: Jeffrey Dahmer og Jesse Anderson, og því miður fleiri auðvitað. Gerandi: Christopher Scarver
Í 9 þætti Bókacastsins ræðum við bókina Ótrúlega skynugar skepnur eftir höfundinn Shelby Van Pelt.
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna og segir frá máli þar sem fjölskyldufaðir fer í vinnuna og allt hið venjulegasta. Þegar hann aftur á móti kemur heim eftir langan vinnudag er allt í skralli. Í verstu merkingu orðsins. Þolandi: Stacey Holston, Devin Holston, Donald McGuire, og Tammie McGuire. Gerandi: Arron Lawson Þátturinn er í boði Nettó, Fulltingi, Óskaskrín, Giggó, Sassy og Happy Hydrate.
Ranking source
Apple Podcasts rankings via the Mato Topic Intelligence Platform.
Observed November 4, 2026.
Apple and Apple Podcasts are trademarks of Apple Inc., registered in the U.S. and other countries.
Pairs with
Bring this source into Mato to read its transferable patterns, then turn them into an original show for your own audience.